flugfréttir

Myndir: Skipt um GE90 hreyfil á 777-300ER þotu í Iqaluit í fimbulkulda

- Vika frá því vélin lenti á Baffinseyju vegna bilunar á leið frá ZRH til LAX

8. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:18

Vélin var á leið frá Zurich til Los Angeles þann 1. febrúar þegar upp kom bilun í hreyfli er hún var yfir Baffinseyju í Kanada

Vika er liðin frá því að farþegaþota af gerðinni Boeing 777-300ER frá SWISS International Air Lines lenti á flugvellinum í Iqaluit á Bafinnseyju eftir að bilun kom upp í vinstri hreyfli vélarinnar.

Eftir umtalsverða skoðun kom í ljós að nauðsynlegt var að skipta um vinstri GE90 hreyfilinn og var Antonov An-124 frakþota fengin til þess að sækja aukahreyfil auk verkfæra og annars búnaðar.

Vélin flaug með hreyfilinn frá Zurich sl. laugardag og lenti seinniparts dagsins á flugvellinum í Iqaluit eftir sex tíma flug þar flugvirkjar biðu vélarinnar auk sérfræðinga frá hreyflaframleiðandanum General Electric.

Upphitað tjald var blásið upp utan við væng Boeing 777 þotunnar til að búa til aðstöðu fyrir flugvirkjana og tækniteymið sem sá um að skipta um hreyfilinn á meðan fyrir utan tjaldið var -30°C stiga frost.

Hreyfillinn var fjarlægður sl. mánudag

Bilaði hreyfillinn var fjarlægður sl. mánudag af væng vélarinnar og í gær var hafist handa við að setja nýja hreyfilinn á en núna er beðið eftir að því sé lokið svo hægt sé að prófa hreyfilinn áður en vélin fer í loftið á ný.

Antonov An-124 þotan hefur verið í Iqaluit síðan hún kom um helgina þar sem hún bíður eftir því að taka bilaða hreyfilinn með til baka til Zurich ásamt tjaldinu, tækjum og tólum.

Í ljós hefur komið íhlutur í gírkassa í kjarna hreyfilsins brotnaði sem varð til þess að brak og brot stífluðu eldsneytisdælur sem varð til þess að skynjari lét hreyfillinn slökkva á sér sjálfkrafa eins og ætlast er til að hann geri þegar upp kemur bilun að þessu tagi.

SWISS International Air Lines hefur fengið sex Boeing 777-300ER þotur afhentar frá Boeing og eru þetta stærstu þoturnar sem félagið hefur í flotanum en félagið mun fá fjórar til viðbótar á þessu ári.













Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga