flugfréttir

Fyrstu prófanir Icelandair í Hvassahrauni fóru fram í gær

- Nýttu sér hvassviðrið og gerðu athuganir á ókyrrð yfir hrauninu

9. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:34

Tölvugerð mynd af Boeing 757-200 yfir Hvassahrauni

Icelandair nýtti sér vetrarlægð sem gekk yfir suðvesturhluta landsins í gær og framkvæmdi fyrstu prófanirnar með aðflug í Hvassahrauni.

Umræða um flugvallarmálin á suðvesturhorni landsins, framtíð flugvallarins í Vatnsmýrinni og uppbygginguna á Keflavíkurflugvelli hefur verið mikið í brennidepli sl. misseri og hafa hugmyndir varðandi möguleika á flugvelli í Hvassahrauni einnig verið mikið til umræðu.

Icelandair tilkynnti sl. sumar að til stæði að framkvæma rannsóknir á veðurfarsskilyrðum í Hvassahrauni í þeim tilgangi að komast að því hvort að svæðið myndi henta fyrir nýjan alþjóðaflugvöll eða ekki.

Djúp lægð gekk yfir landið í gærmorgun með miklu hvassviðri víðast hvar og var því ákveðið að nýta þau skilyrði fyrir prófanir og voru fyrstu tilraunirnar framkvæmdar í gær..

Icelandair notaði Boeing 757-200 þotu í prófanirnar sem flaug nokkur flug í aðflugshæð yfir svæðið og gengu prófanirnar vel að sögn Hilmars B. Baldurssonar, flugrekstrarstjóra Icelandair.

Flugprófanirnar yfir Hvassahrauni í dag á Flightradar24.com

„Niðurstaðan er sú að við munum halda þessum athugunum áfram“, segir Hilmar í samtali við Alltumflug.is sem tekur fram að prófanirnar í dag hafi verið mjög jákvæðar og verður þeim haldið áfram.

Búið að teikna upp þrjú aðflug að brautum

Prófanirnar ganga fyrst og fremst út á að meta ókyrrðina á svæðinu þar sem Hvassahraun er nálægt fjalllendi á meðan Keflavíkurflugvöllur er úti á bersvæði.

Hilmar segir að búið sé að „teikna“ aðflug inn á stefnu á brautirnar eins og þær myndu mögulega koma til með að vera staðsettar á svæðinu sem flugvél Isavia hefur flugprófað en aðstæðurnar voru bæði prófaðar í flughermi og einnig af Isavia.

„Það er búið að teikna þrjár brautir á þessu svæði og við prófuðum aðflug inn á allar þessar þrjár brautir“, segir Hilmar sem tekur fram að eflaust muni á næstunni einnig fara fram prófanir með minni flugvélar heldur en Boeing 757.

„Við munum kanna þetta eins vel og við getum þannig að þegar kemur að því að taka ákvörðun þá verðum að vera sannfærðir um að þetta sé í lagi“.

Það var í júlí sl. sumar sem að Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, tilkynnti að til stæði að skoða möguleikann á því hvort að Hvassahraun myndi henta sem staðsetning fyrir nýjan flugvöll í ljósi afstöðu meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkurborgar gagnvart framtíð flugvallarins í Vatnsmýrinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga