flugfréttir
Vilja afnema flugvallarskatta í Evrópu og lægri lendingargjöld
- Ráðstefna A4E (Airlines for Europe) fór fram í gær í Brussel
Samtökin hvetja Evrópusambandið til að stuðla að því að flugvallarskattar verði afnumdir og flugvallargjöld verði lækkuð
Samtök evrópskra flugfélaga, A4E (Airlines for Europe), hvetja yfirvöld í Evrópu til að grípa til aðgerða til að stuðla að lækkun flugvallargjalda og það helst á þessu ári.
Thomas Reynaert, formaður samtakanna, segir að Evrópusambandið verði að endurskoða
flugvallargjöld í Evrópu og segir hann að samtökin hafi sofnað á verðinum varðandi eftirlit
með því að jafnrétti sé gætt er kemur að ákvörðun og breytingum á slíkum gjöldum sem ekki eru gerð í samræði við flugfélögin.
Þetta kom fram á fundi A4E sem fram fór í gær í Brussel en Jean-Marc Janaillac,
framkvæmdarstjóri Air France-KLM, tók í sama streng og sagði hann að samtökin
fara fram á sanngjörn flugvallargjöld og verði þeim að breyta hið fyrstra.
Þá sagði Janaillac að stjórn flugvalla ættu að ráðfæra sig fyrst við flugfélögin áður en
þeir taka af skarið og hækka gjöldin.
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri IAG, móðurfélags British Airways og Iberia, hvatti einnig
framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins til að auka samkeppnishæfni evrópskra flugfélaga
með því að stuðla að því að flugvallarskattar verða afnumdir.
Walsh segir að Bretland, Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Austurríki, séu þau
lönd sem hafa hæstu flugvallarskatta í Evrópu og tekur hann fram að ef flugvallarskattar
í Bretlandi yrðu lagðir niður þar í landi þá myndi það efla efnahag Bretlands um 1.7 prósent.
Walsh bendir á að Írar og Hollendingar hafi fellt niður flugvallarskatta og
hafi það nú þegar aukið efnahaginn í löndunum eftir að sú breyting var gerð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.