flugfréttir

Singapore Airlines pantar 39 þotur af gerðinni Boeing 777-9 og 787-10

- Kaupin metin á yfir eittþúsund og 500 milljarða króna

9. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:55

Tölvugerð mynd af Boeing 777-9 í litum Singapore Airlines

Singapore Airlines hefur gert samkomulag við Boeing um pöntun á allt að 50 farþegaþotum af gerðinni Boeing 777-9 og Boeing 787.

Samkvæmt samkomulaginu þá ætlar Singapore Airlines að panta nítján Dreamliner-þotur af lengstu gerðinni, Boeing 787-10, og 20 arftaka Boeing 777 þotunnar, Boeing 777-9.

Því er um að ræða 39 þotur en félagið ætlar sér einnig að taka kauprétt á sex vélum af hvorri gerð til viðbótar sem þýðir að félagið myndi því taka 51 þotu ef kauprétturinn verður nýttur.

Singapore Airlines myndi fá fyrstu Boeing 787-10 þoturnar afhentar árið 2020 og ári síðar, árið 2021, verða fyrstu Boeing 777-9 þoturnar afhentar.

Tölvugerð mynd af Boeing 787-10 í litum Singapore Airlines

Flugfélagið segir að Boeing 777-9 vélarnar verða eingöngu notaðar á langflugsleiðum á meðan Boeing 787-10 vélarnar verða notaðar á meðallöngum flugleiðum.

Félagið hefur valið Trent 1000 hreyfla frá Rolls-Royce fyrir Boeing 787-10 þoturnar á meðan GE9X frá General Electric munu knýja áfram Boeing 777-9 vélarnar.

Singapore Airlines á nú þegar von á 30 vélum af gerðinni Boeing 787-10 sem pantaðar voru árið 2013 en þær fyrstu verða afhentar á næsta ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga