flugfréttir

Trump vill gera farþegaflugið „frábært“ aftur

- Vill afnema íþyngjandi reglugerðir og úrelt flugleiðsögukerfi

9. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 20:40

Donald Trump á fundi með forsvarsmönnum stærstu flugfélaga Bandaríkjanna í Hvíta Húsinu

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur lofað framkvæmdarstjórum stærstu flugfélaganna vestanhafs nýjum reglugerðum sem munu auðvelda rekstur félaganna allt frá skattamálum til flugumferðarstjórnunar og auka þægindi farþega.

Þá hefur Trump einnig sagt að hann ætli að beita sér fyrir því að hið „úrelda“ flugumferðarkerfi, auk viðeigandi búnaður til flugleiðsögu í Bandaríkjunum, verði uppfært og endurnýjað en FAA vinnur nú þegar að endurnýjun á flugleiðsögukerfinu vestanhafs.

Trump átti yfir klukkustunda langan fund í Hvíta Húsinu með forsvarsmönnum Delta Air Lines og United Airlines auk yfirmanna í stjórn nokkurra flugvalla og samtaka.

„Við höfum úrelt kerfi í flugsamgöngum, úrelda flugvelli, úrelt lestarkerfi og slæma vegi. Við ætlum að breyta þessu öllu, gott fólk“, sagði Trump á fundinum.

Forsetinn tók fram að hann ætlaði að berjast fyrir því að „íþyngjandi reglugerðir“ verði afnumdar til að létta daglegan rekstur flugfélaganna og þá tók hann fram að á næstu 2 til 3 vikum verði kynntar byltingarkenndar áætlanir sem miðast að því að lækka skatta sem verður „magnað“ fyrir flugfélögin.

Trump segir nýtt flugleiðsögukerfi FAA enn úrelt og of kostnaðarsamt

Þá fordæmti Trump NextGen flugleiðsögukerfið sem bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa verið að innleiða sem er hluti að endurnýjun á búnaði til flugumferðarstjórnar vestanhafs.

Trump segir að Nextgen leiðsögukerfið sé að kosta „milljarða og aftur milljarða“ og muni það ekki leysa neinn vanda þar sem nýja kerfið er ennþá úrelt á meðan hægt væri að fara ódýrari leiðir.

Trump segir að hann vilji að farþegar geti upplifað bestu flugsamgöngur sem völ er á án þess að þurfa lenda í seinkunum og það fyrir eins lítinn kostnað og hægt er.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga