flugfréttir
Air Canada kynnir nýja liti og nýtt útlit á flugflotann
- Kveðja ljósgrænbláa útlitið og taka upp hvíta og svarta liti
Svona munu flugvélar Air Canada koma til með að líta út en nú þegar er búið að mála eina vél í nýju litunum
Air Canada hefur kynnt nýtt útlit og liti sem munu koma til með að leysa af hólmi ljósgrænbláa útlitið sem hefur einkennt vélar félagsins sl. ár.
Nýju litirnir eru svipaðir gömlu litunum áður en ljósgrænblá útlitið kom til sögunnar en þykir
einnig minna á núverandi liti Delta Air Lines.
Air Canada hefur málað fyrstu þotuna í nýju litunum sem er Boeing 787-8 þota sem sýnd
var í nýja útlitinu í gær á flugvellinum í Toronto við hátíðlega athöfn en þá kynnti félagið einnig nýja búninga fyrir flugfreyjur, flugþjóna og flugmenn félagsins.
Vélar félagsins munu verða hvítar á ný og svartar að neðan með fleiri „maple leaf“ laufblöð
Um er að ræða hvítan búk sem er svartur fyrir neðan væng með rauða „maple leaf“ laufblaðinu
á svörtu stéli. Þá kemur laufblaðið einnig fyrir með merki félagsins fremst á skrokknum auk þess sem laufið er einnig að finna undir
miðjum búknum.
Þá munu flugvélar Air Canada fá svartan „augnskugga“ kringum gluggana á stjórnklefanum sem
er ekki ósvipuð „grímunni“ sem einkennir Airbus A350.
Svona hafa flugvélar Air Canada litið út sl. ár
Air Canada hefur yfir 170 flugvélar í flota sínum sem verða á næstu árum málaðar í nýju litunum og
þá á félagið eftir að fá 121 þotu afhenta frá Boeing, Bombardier og Embraer sem munu koma í nýju
litunum.
Núverandi útlit var kynnt til sögunnar árið 2007 en um er að ræða ljósgrænbláan lit með svartri
punktagrafík á stéli kringum laufblaðið en það tók við útliti sem félagið hafði verið með frá árinu 1993.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.