flugfréttir

Forskot WOW air og Norwegian til Ameríku lætur Ryanair hætta við ameríska drauminn

- Ryanair segir samkeppnina yfir Atlantshafið of mikla

10. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:15

Boeing 737-800 þotur Ryanair

Lágfargjaldaflug WOW air milli Evrópu og Bandaríkjanna er ein ástæða þess að Ryanair ætlar að hætta við áform sín um að hefja flug yfir Atlantshafið til Ameríku.

Nokkur ár eru síðan að lágfargjaldafélagið írska greindi frá því að verið væri að skoða möguleika á lágfargjaldaflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku en í febrúar 2014 sagði Ryanair að mögulega myndi félagið bjóða upp á flug fyrir litlar 10 evrur aðra leiðina.

Nú hefur Ryanair sett þessar hugmundir á hilluna og er ástæðan sögð vera of mikil samkeppni meðal lágfargjaldafélaga yfir Atlantshafið og ætlar félagið að einblína þess í stað á samkeppnina í Evrópu.

Ryanair segir að nú þegar sé WOW air, Norwegian Air og kanadíska flugfélagið WestJet að bjóða upp á lág fargjöld yfir Atlantshafið ásamt Rouge sem er dótturflugfélag Air Canada.

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair ætlar sér
að einbeita sér þess í stað að Evrópu

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að hríðfallandi verð á þotueldsneyti hefur gefið flugfélögum tækifæri á að hefja lágfargjaldaflug yfir Atlantshafið en Ryanair sagði árið 2014 að félagið þyrfti fyrst að finna fleiri vélar í flotann til að geta byrjað að fljúga til Ameríku.

Þá segir O´Leary einnig að samkeppnin sé einnig mjög mikil frá miðausturlandafélögum á borð við Emirates, Qatar Airways og Etihad Airways sem sum fljúga til Ameríku með viðkomu í evrópskum borgum sem myndi sennilega gera Ryanair erfiðara fyrir í samkeppninni.

Áhugi Ryanair fyrir flugi til Ameríku byrjaði fyrst árið 2007 en dalaði með árunum en það var ekki fyrr en fyrir 3 árum síðan að félagið fór aftur að skoða kosti þess að hefja lágfargjaldaflug til Bandaríkjanna.

Markaðssérfræðingar höfðu lýst yfir efasemdum varðandi þessi áform og töldu að núverandi viðskiptamódel Ryanair myndi ekki virka í flugi til Ameríku þar sem farþegar vilja aukin þægindi þegar kemur að því að fljúga í yfir 7 klukkustundir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga