flugfréttir
Emirates segir að Delta hafi neitað að afgreiða þá um varahlut í Boeing 777
- Delta segir að um síðasta varahlutinn hafi verið að ræða af þessari gerð
Boeing 777 þota á flugvellinum í Seattle
Emirates segir að Delta Air Lines hafi neitað að afgreiða félagið um varahlut sem olli sex klukkustunda seinkun á brottför frá flugvellinum í Seattle til Dubai.
Smávægileg bilun kom upp í vökvakerfi vélarinnar og var nauðsynlegt að skipta um
varahlut sem kostaði einungis 33.000 krónur og var búið að panta hann
frá viðhaldsstöð Delta sem einnig hefur Boeing 777 þotur í sínum flota.
Þegar kom að því að afhenda varahlutinn til Emirates kom beiðni frá yfirmanni
í höfuðstöðvum Delta í Atlanta sem fyrirskipaði að varahluturinn yrði ekki
afhentur til Emirates.
Emirates telur að þetta hafi eitthvað með deilurnar að gera milli þriggja stærstu
flugfélaga Bandaríkjanna og Emirates, Qatar og Etihad Airways sem American Airlines,
United Airlines og Delta Air Lines saka um óheiðarlega samkeppni með því að þiggja
styrki frá ríkisstjórnum sinna landa.
„Það er sorglegt að flugfélag skuli í alvörunni vera að neita öðru flugfélagi um þjónustu
er kemur að tæknilegum vandamálum vegna fyrirskipunar frá einhverjum í stjórn
félagsins“, segir í tölvupósti frá Emirates.
Delta, sem og önnur flugfélög, deila þjónustu og varahlutum með öðrum flugfélög
sem lenda í vandamálum samkvæmt samkomulagi sem ríkir og er ekkert flugfélag
sem er neitað um aðgang að nauðsynlegum varahlutum.
Talsmaður Delta segir aðspurður vegna málsins að um síðasta varahlutinn af þessari
tegund hafi verið að ræða í Seattle og sé það stefna félagsins að láta ekki af hendi
síðasta eintakið af öryggisástæðum ef félagið þarf sjálft á honum að halda.
„Að hafa rétta varahlutinn á réttum stað þegar aðeins eitt eintak er eftir er nauðsynlegt
til að viðhalda óskertri starfsemi sem annars bitnar á viðskiptavinum okkar“, segir í
yfirlýsingu frá Delta.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.