flugfréttir
Singapore Airlines pantar 45 GE9X hreyfla
- Munu knýja áfram þær 20 Boeing 777-9 þotur sem félagið hefur pantað
GE9X hreyfillinn frá General Electric
Singapore Airlines hefur gert samning um pöntun á 45 hreyflum af gerðinni GE9X frá General Electric að andvirði 226 milljarða króna.
Hreyflarnir munu koma til með að knýja áfram þær tuttugu Boeing 777-9 þotur sem
Singapore Airlines pantaði í seinustu viku.
Fáir hreyflar fyrir breiðþotur hafa selst eins ört og GE9X hreyfillinn sem hefur verið pantaður í
700 eintökum en hreyfillinn fór á teikniborðið hjá General Electric árið 2012.
GE9X hefur aðeins 16 hreyflablöð á meðan GE90 hefur 22 blöð en með sextán
blöðum verður hreyfillinn léttari og nær að snúast hraðar.
Fyrstu tilraunir með GE9X hreyfilinn hófust árið 2016 og eru fyrstu flugprófanir með
hann áætlaðar síðar á þessu ári og er vonast til að hreyfillinn fái flughæfnisvottun árið 2018.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.