flugfréttir

Flugvirkjar settu óvart vitlausan gagnagrunn í flugtölvuna

- Flug BA001 komst ekki áfram frá Írlandi til Ameríku

13. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:02

Vélin var á leið frá London City til New York sl. föstudag þegar í ljós kom að ekki var hægt að halda fluginu áfram eftir viðkomu á Írlandi

Farþegar um borð í Airbus A318 þotu frá British Airways urðu strandaglópar á Írlandi þar sem vélin gat ekki flogið yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna þar sem flugvirkjar félagsins höfðu óvart uppfært flugtölvu vélarinnar með röngum gagnagrunni.

Um var að ræða flug BA1 sem er viðskiptaflug British Airways frá London City til JFK í New York sem flogið er með Airbus A318 sem hefur vanalega viðkomu á Shannon til að taka eldsneyti fyrir flugið yfir Atlantshafið.

Af einhverjum ástæðum töldu flugvirkjarnir að vélin væri að fara fljúga til Evrópu þar sem Airbus A318 þotan er minnsta vélin sem Airbus framleiðir en British Airways hefur tvær slíkar í flotanum sem aðeins eru notaðar í flugið milli London City og New York.

Airbus A318 þota British Airways í flugtaki á flugvellinum í London City

Um helgina þegar vélin lenti á Shannon til að taka eldsneyti uppgötvuðu flugmennirnir að flugtölva vélarinnar (FMGC) bauð ekki upp á að stimpla inn leiðina til Bandaríkjanna þar sem gagnagrunnurinn hafði verið uppfærður aðeins fyrir flugleiðir innan Evrópu.

Gerð var tilraun til að sækja nýjan gagnagrunn en án árangurs sem endaði með því að vélin var föst á Írlandi þar sem hún gat heldur ekki flogið til baka þar sem of mikið eldsneyti var um borð sem gerir hana of þunga til að lenda á þeirri stuttu flugbraut sem er á London City.

British Airways þurfti að útvega farþegum gistingu í írska bænum Limerick og var fluginu frestað til næsta dags.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga