flugfréttir
ARJ21 þotan hefur farið í sína fyrstu C-skoðun
Flugvirkjahópur Taikoo Aircraft Engineering eftir að fyrsta C-skoðunin á ARJ21 var lokið
Flugvélaverkstæðið Taikoo Aircraft Engineering hefur framkvæmt C-skoðun á kínversku ARJ21 þotunni en þetta er í fyrsta sinn sem slík skoðun fer fram á þessari nýju þotu sem kom á markaðinn í fyrra.
Fyrsta ARJ21 þotan var afhent til Chengdu Airlines sem flaug
vélinni fyrsta áætlunarflugið í heimi þann 28. júní í fyrra en félagið
fékk vélina afhenta í nóvember 2015.
Vélin var færð í C-skoðun þann 8. febrúar og tók skoðunin um
fjóra daga en Chengdu Airlines hefur fengið tvær vélar afhentar af þessari
gerð af þeim 30 sem pantaðar voru.
ARJ21 er framleidd af kínversku flugvélaverksmiðjunum COMAC
sem einnig framleiðir C919 þotuna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.