flugfréttir
Flugstjóri í andlegu ójafnvægi hræddi farþega frá borði með áróðri um Trump
- Tjáði farþegum að hún væri að ganga í gegnum skilnað
Um 20 farþegar yfirgáfu vélina þar sem þeim leyst ekkert á hegðun flugstjórans
Óvenjulegt atvik átti sér stað um helgina á flugvellinum í Austin í Texas er kona, sem er flugstjóri hjá United Airlines, mætti of seint um borð klædd í hefðbundin föt með derhúfu og hóf að ávarpa farþega gegnum kallkerfið þar sem hún lýsti andúð sinni á Donald Trump auk þess sem hún tjáði farþegum að hún væri að ganga í gegnum skilnað.
Flugstjórinn átti að fljúga Airbus A319 þotu félagsins til San Francisco en þegar hún kom um borð byrjaði hún á því að óska eftir atkvæðum frá farþegum sem hún bað um að segja sér
hvort hún ætti að fljúga í sínum venjulegum fötum eða fara í flugmannabúninginn.
Hún afsakaði að hún væri klædd í venjuleg föt og sagði að því miður þá væri hún að ganga í gegnum skilnað
við eiginmann sinn.
Að sögn þeirra farþega sem voru um borð þá tók hún því næst kallkerfið fram í hjá flugfreyjunum og byrjaði að lýsa skoðunum sínum á Donald Trump og Hillary Clinton og sagði að þau væru bæði fávitar og lygarar og sagðist hún hafa ekki greitt þeim sitt atkvæði í forsetakosningunum sl. haust.
Ljósmynd sem einn farþeginn um borð tók af flugstjóranum er hún ávarpi farþega
Á þessum tímapunkti voru farþegar farnir að lýsa frá hegðun flugstjórans á Twitter og skrifuðu einnig um ástand
hennar á samfélagssíður United Airlines.
„Ég var að yfirgefa flug UA455 þar sem að flugstjórinn sýndi mjög áberandi að hún er ekki í andlegu jafnvægi til að fljúga“, skrifaði einn farþeginn á Twitter en um tuttugu farþegar yfirgáfu vélina þar sem þeir treystu sér ekki til að fljúga með henni.
Talsmaður United Airlines staðfesti að flugstjórinn um borð í umræddu flugi mætti ekki í viðeigandi klæðnaði og ekki
er vitað af hverju henni var hleypt út í vél án búningsins.
United Airlines bað farþegana afsökunar á þessu atviki en tveggja tíma seinkun varð á fluginu þar sem flugfélagið
þurfti að kalla til annan flugstjóra.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.