flugfréttir
Widerøe verður fyrsta félagið til að fá E2 þotuna frá Embraer
Tölvugerð mynd af Embraer E19-E2 í litum Widerøe
Norska flugfélagið Widerøe verður fyrsta flugfélagið í heimi til að fá fyrsta eintakið af E2 þotunni frá Embraer sem er ný kynslóð af E-þotunni.
Í yfirlýsingu frá brasilíska flugvélaframleiðandanum kemur fram að Widerøe verði fyrsta flugfélagið til að fá vélina
eða „launch customer“ eins og það kallast á ensku.
„Widerøe er brautryðjandi á sínu sviði og hefur félagið náð mjög langt og er árangur félagsins sambærilegur
og frammistaða Embraer meðal flugvélaframleiðanda“, sagði John Slattery, framkvæmdarstjóri yfir farþegaþotudeild
Embraer.
Widerøe pantaði þrjár Embraer E190-E2 þotur um miðjan janúar með kauprétti á tólf vélum til viðbótar
en flugfélagið fær fyrstu þotuna afhenta á fyrri helmingi ársins 2018.
Embraer hefur fengið pantanir í 275 eintök af E190-E2 þotunni en meðal þeirra flugfélaga sem hafa pantað
þessa þotu eru SkyWest Airlines, ILFC, Air Costa, Tianjin Airlines, Azul, Aircastle, Kalstar Aviation og Widerøe.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.