flugfréttir

Emirates íhugar smærri þotur á borð við Boeing 737

- Airbus A380 og Boeing 777 of stórar til sumra áfangastaða

14. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:31

Tölvugerð mynd af Boeing 737-800 í litum Emirates

Emirates er sagt vera að skoða þann möguleika að taka aftur litlar farþegaþotur í flotann sem koma með einum gangi á borð við Airbus A320 og Boeing 737.

Emirates hefur verið þekkt fyrir að hafa aðeins breiðþotur í flota sínum en í dag hefur félagið aðeins stærstu þoturnar sem framleiddar eru og samanstendur flotinn einungis af risaþotunni Airbus A380 og Boeing 777-300ER.

Tim Clark, forstjóri Emirates, hefur greint frá því að Emirates sé að íhuga að panta litlar þotur með einum gangi sem hann segir vera þekktari fyrir þrengri sæti í stað lúxusfarrýma sem koma með bar og jafnvel sturtum.

Clark segir að Emirates muni á næstu 18 mánuðum fara yfir flotastefnu félagsins og verði þá ákveðið hvort að pantaðar verði Airbus A320 þotur eða Boeing 737 vélar eða hvort að félagið haldi áfram sínu striki og verði aðeins með risabreiðþotur.

Um gríðarlega breytingu væri að ræða fyrir Emirates þar sem vélarnar sem félagið hefur í dag taka minnst 266 farþega og alveg upp í 615 farþega sem er sá sætafjöldi sem sérstök útgáfa af risaþotunni Airbus A380 tekur.

Í dag hefur Emirates aðeins risaþotur og Boeing 777-300ER í flota sínum

20 ár eru frá því að Emirates hafði seinast litlar þotur í flotanum með einum gangi en félagið hafði á tímabili Boeing 737-300 þotur sem félagið hætti með árið 1997.

Tim Clark segir að Emirates hafi flogið risaþotunni A380 og Boeing 777 til allra borga í leiðarkerfinu en í rauninni er verið að nota vélarnar einnig í áfangastaði sem eru það nálægt Dubai að í raun og veru væri gáfulegri kostur að nota minni vélar til þeirra borga.

Breytt landslag í flugheiminum að undanförnu er einnig ástæða til þess að huga að minni vélum en sl. 3-4 ár hefur verð á þotueldsneyti lækkað það mikið að Emirates hefur í kjölfar lækkað fargjöld svo mikið að Clark segir að það „jaðri við heimsku“ hversu lág fargjöldin eru orðin hjá félaginu.

Emirates, sem hefur 250 þotur í flotanum, á von á að annar eins fjöldi bætist við í flotann á næstu árum en félagið ætlar að draga úr pöntunum og afhendingum þar sem eilítið hefur dregið úr eftirspurn eftir flugsætum.

Emirates hætti við sjötíu Airbus A350 þotur árið 2014 og þá ákvað félagið nýlega að fresta því að taka á móti nokkrum Airbus A380 þotum.

„Þegar rétti tíminn kemur þá munum við taka ákvörðun - en eins og staðan er núna erum við bara aðeins að bíða og sjá hvernig þetta þróast“, segir Clark.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga