flugfréttir

Nýfundið brak eftir flugslys árið 1985 gefur engar nýjar vísbendingar

14. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:42

Fjallgöngumennirnir Dan Futrell og Isaac Stoner fundu flugritann í maí 2016

Brak sem fjallgöngumenn fundu í fyrra í fjalllendi í Bólivíu sem tilheyrir farþegaþotu af gerðinni Boeing 727 frá Eastern Air Lines, sem fórst þar árið 1985, nær ekki að varpa neinu nýju ljósi á flugslysið að sögn samgönguöryggisnefndar Bandaríkjanna (NTSBI).

Það voru tveir fjallgöngumenn sem fundu leyfar af flugrita vélarinnar í maí árið 2016 en erfiðlega gekk að fara með brakið úr landi en yfirvöld í Bólivíu gáfu NTSB loksins leyfti til að nálgast brakið sem tilheyrir svörtu kössum vélarinnar.

Brakið hefur verið til rannsóknar frá því um áramót að beiðni stjórnvalda í Bólivíu en NTSB fékk það í hendurnar þann 4. janúar.

Í yfirlýsingu til fjölmiðla frá NTSB segir að brakið sé af umgjörð svörtu kassanna en það innihaldi ekki þann búnað sem hefur að geyma upptökur úr hljóðrita og flugrita vélarinnar og séu því engar frekari vísbendingar að hafa.

„Brakið samanstendur af málmbútum og bút af segulbandi. Einn búturinn er hylkið utan af hljóðritanum og hinn búturinn er af flugritanum.

Vélin flaug inn í hlíðar Illimani-fjallsins í 6.126 metra hæð í aðfluginu að Laz Paz og er þetta enn þann dag í dag „hæðsta“ flugslys sögunnar þar sem flugvél er flogið á fjall í stjórnuðu flugi („controlled flight into terrain“).

Slysið átti sér stað þann 1. janúar árið 1985 og voru nítján farþegar um borð auk 10 áhafnarmeðlima en enginn komst lífs af.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga