flugfréttir

Ekki hægt að gefa út vottun eða ný leyfi vegna manneklu

- Tælensk flugmálayfirvöld þjálfa nýja starfsmenn

15. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:50

Airbus A330 þota Thai Airways á flugvellinum í Bangkok

Flugmálayfirvöld í Tælandi hafa þurft að fresta því að gefa út vottun og skírteini þar sem stofnuninni skortir mannskap með nægilega þekkingu til að framkvæmda úttektir og vinnslu á útgefnum leyfum.

Þannig hafa ný flugfélög ekki geta hafið flugrekstur vegna manneklu en verið er að þjálfa nýja starfsmenn sem munu koma til með að hafa umsjón með reglugerðum og framkvæmdir á stöðlum.

Aðili, sem starfar hjá flugmálayfirvöldum í Tælandi, segir að þjálfun á nýjum starfsmönnum sé hluti í að efla öryggismál í fluginu í landinu og ná markmiðinu sem er að uppfæra flugmálin aftur upp í fyrsta öryggisstig „Category 1“ en í desember árið 2015 lækkuðu bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) öryggisstuðul landsins niður í „Category 2“.

Með því gátu tælensk flugfélög ekki hafið flug til nýrra áfangastaða í Bandaríkjunum en eins og staðan er í dag er ekkert tælenskt flugfélag sem flýgur til Ameríku eftir að Thai Airways hætti að fljúga milli Bangkok og Los Angeles.

Síðastliðin ár hefur Tæland átt í erfiðleikum með að uppfylla skilyrði og kröfur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) og er landið eitt af þeim átta sem eru á lista yfir lönd þar sem öryggismál eru ábótavant.

Hvorki meira né minna en 24 tælensk flugfélög fljúga til og frá tælenskum flugvöllum og þar af 10 í áætlunarflugi á meðan 14 sinna fraktflugi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga