flugfréttir
Sættir nást milli flugmanna og Lufthansa eftir 5 ára launadeilur
- Fá 8.4% launahækkun
Flugfloti Lufthansa
Sættir hafa nást í kjaradeilu milli flugmanna Lufthansa og stjórnar flugfélagsins þýska.
Kjaradeilur flugmanna og stéttarfélagsins Vereinigung Cockpit (VC) hafa staðið yfir í nokkur ár og hafa
deilurnar orsakað fjölda verkfallsaðgerða.
Lufthansa segir að í kjölfar samningsins munu yfir 5,400 flugmenn hjá Lufthansa, Lufthansa Cargo og Germanwings
fá 8.7% launahækkun auk þess sem allir flugmenn munu fá bónusgreiðslur upp á 600,000 krónur.
Kjaradeilurnar hafa staðið yfir í 5 ár eða frá árinu 2012 en á þessu tímabili hafa flugmenn lagt niður störf sín
alls 14 sinnum sem hefur kostað Lufthansa 500 milljónir evra sem samsvarar 58 milljörðum króna.
Nýi samningurinn nær hinsvegar ekki yfir eftirlaunamál auka annarra mála og er því ekki búið að útiloka
frekari verkfallsaðgerðir á meðan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.