flugfréttir

Snéri við með eldsneytisleka eftir að hafa klesst á dádýr í flugtaki

charlotte, nc

15. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 19:36

Slökkvilið og tækjabílar sprautuðu vélina með froðu eftir að í ljós kom að mikið magn af eldsneyti var að leka frá vélinni

Farþegaþota frá American Eagle af gerðinni Canadair CRJ-700 varð fyrir dádýri sem hljóp í veg fyrir vélina er hún var í flugtaki á Charlotte-Douglas flugvellinum í Norður-Karólínu nú fyrir stundu.

Vélin var í flugtaki kl. 16:42 að íslenskum tíma á Charlotte-Douglas flugvelli á leið til Gulfport í Mississippi þegar flugmennirnir og farþegar urðu varir við háværan hvell þegar vélin var að hefja sig á loft.

Vélin, sem er í eigu PSA Airlinse, sem flýgur m.a. fyrir American Eagle, hætti flugtaksklifri í 4,000 fetum og snéri við og fór í lágflugi yfir flugvöllinn svo flugumferðarstjórar gætu séð hvort að öll hjólin væru niðri.

Hinsvegar kom í ljós mikill gufu- og vatnsslóði sem lagði frá öðrum væng vélarinnar og tilkynnti annar flugmaður á annarri vél að sennilega væri um eldsneytisleka að ræða.

Á myndbandinu má sjá lekann er vélin kom inn til lendingar:



Slökkviliðsbílar og tækjabílar umkringdu vélina eftir að hún lenti og var hún sprautuð með froðu þar sem mikið magn af þotueldsneyti lak frá tönkum vélarinnar.

44 farþegar voru um borð í vélinni og voru þeir fluttir með rútum að flugstöðinni en engann sakaði.

Skömmu eftir að flugvélin snéri eftir flugtakið fundu starfsmenn flugvallarins dautt dádýr á flugbrautinni og hafa bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) staðfest að vélin hafi klesst á dýrið í flugtakinu.

44 farþegar voru í vélinni og komist allir frá borði heilir á húfi







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga