flugfréttir

Icelandair kaupir Boeing 737 MAX flughermi

- Ný bygging mun rísa utan um herminn á Flugvöllum í Hafnarfirði

16. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:24

Boeing 757 flughermirinn á Flugvöllum sem tekinn var í notkun fyrir 2 árum síðan

Icelandair hefur gert samning um kaup á nýjum flughermi sem mun bætast við þann hermi sem félagið er nú þegar með í notkun við þjálfun flugmanna á Flugvöllunum í Hafnarfirði.

Um er að ræða Boeing 737 MAX flughermi sem kemur frá TRU Simulation + Training í Kanada en Icelandair er fyrsta flugfélagið í heimi til að panta Boeing 737 MAX flughermi.

Boeing flugvélaframleiðandinn er um þessar mundir sjálfur að gangsetja fyrstu fjóra flughermana í heiminum fyrir Boeing 737MAX en Icelandair á von á því að hermirinn verði komin til lands næsta vor og verður hann tekinn í notkun sumarið 2018 en fyrstu Boeing 737 MAX vélarnar hjá Icelandair munu hefja áætlunarflug snemma á næsta ári.

Ný bygging mun rísa utan um nýja herminn

Ný bygging mun rísa utan um flugherminn sem verður áföst byggingunni á Flugvöllum þar sem Boeing 757-200 flughermirinn er núna til húsa sem var tekinn í notkun fyrir 2 árum síðan.

Rekstur hermisins hefur reynst mjög vel og á síðasta ári var nýting hans 18 klukkustundir að meðaltali á sólarhring. Icelandair er stærsti notandinn, en erlend flugfélög svo sem FedEx, kaupa einnig þjálfun fyrir sína flugmenn í herminum.

Stjórnklefinn um borð í Boeing 737 MAX þotunum

„Ákvörðunin um kaupin á 737MAX flughermi byggir einkum á hinum miklu vinsældum þessarar nýju flugvélagerðar en hún hefur selst hraðar en nokkur önnur vél í sögu Boeing“, segir Guðmundur Örn Gunnarsson, framkvæmdarstjóri TRU Flight Training Iceland.

„Um 3600 Boeing 737MAX hafa þegar verið seldar, til viðbótar við þær níu þúsund 737 vélar sem fyrir eru í heiminum, og ljóst að mikil spurn verður eftir flughermiþjálfun flugmanna þegar vélarnar koma á markað. Stefnt er að því að öll þjálfun flugmanna sem fljúga hinum sextán 737MAX vélum sem Icelandair hefur pantað verði hér á landi, og hefjist skömmu eftir að fyrstu vélarnar koma frá og með sumrinu 2018. Einnig mun hermirinn verða leigður út til þjálfunar flugmanna nokkurra þeirra fjölmörgu erlendu flugfélaga sem reka munu stóra flota MAX véla næstu áratugina,“ segir Guðmundur Örn.

TRU Flight Training Iceland er dótturfélag Icelandair sem sér um rekstur á flughermum og öðrum þjálfunarbúnaði. Flughermar eru nákvæmar eftirlíkingar af stjórnklefum viðkomandi flugvélagerðar, þeir líkja eftir flugeiginleikum og unnt er að kalla fram margháttaðar bilanir og óvæntar aðstæður sem og flug við breytileg veðurskilyrði til að reyna á þjálfun flugmanna. 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga