flugfréttir
Air India fær sína fyrstu Airbus A320neo
Fyrsta Airbus A320neo þotan fyrir Air India
Air India hefur fengið sína fyrstu Airbus A320neo þotu afhenta en félagið pantaði 14 eintök af þessari vél á sínum tíma.
Airbus hefur í dag afhent 70 Airbus A320neo þotur til 23 viðskiptavina en indverska flugfélagið
IndiGo hefur fengið flestar vélar afhentar eða alls sextán þotur.
Air India tekur Airbus A320neo þoturnar á leigu gegnum flugvélaleiguna Aviation Lease and Finance
Company (ALAFCO) í Kuwait.
Airbus A320neo vélarnar munu bætast við hóp 66 þotna úr Airbus A320 fjölskyldunni í flota Air India
sem samanstendur af Airbus A319, A320 og Airbus A321.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.