flugfréttir

Starfsmenn Boeing í Suður-Karólínu kjósa gegn aðild að starfsmannafélagi

- 74% vilja ekki ganga í sama stéttarfélög og starfsmenn Boeing í Everett

16. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:50

Frá verksmiðjum Boeing í Suður-Karólínu

Starfsmenn Boeing í verksmiðjunum í North Charleston í Suður-Karólínu hafa kosið gegn því að ganga til liðs við samstarfsmenn sína í Everett með því að verða meðlimir í starfsmannafélaginu International Association of Machinists and Aerospace Workers (IAM).

Um 3 þúsund starfsmenn Boeing starfa í flugvélaverksmiðjunum í Suður-Karólínu þar sem aðeins eru framleiddar Dreamliner-þotur en af þeim sem tóku þátt í kjörinu voru 74% sem felldu tillögu um að ganga til liðs við stéttarfélagið IAM.

Mike Evans, formaður IAM, segir það vera mikil vonbrigði að starfsmenn Boeing í Suður-Karólinu vilji ekki njóta sömu kjara og réttinda og samstarfsmenn þeirra í Washington-fylki með því að ganga í starfsmannafélagið en niðurstaðan kemur ekki á óvart þar sem talið var að kjörið myndi fara á þennan veg.

IAM mun þurfa að bíða í eitt ár til viðbótar þar til hægt verður að framkvæma nýja kosningu en starfsmenn Boeing í Suður-Karólínu eru staðráðnir í að starfa áfram sem ein heild án þess að vera í starfsmannafélagi.

Starfsmenn Boeing í Suður-Karólínu á kynningu um inngögnu í starfsmannafélagið IAM

Suður-Karólína er það fylki Bandaríkjanna þar sem fæstir starfsmenn eru í starfsmannafélögum en einungis 1.6% þeirra sem eru á vinnumarkaði í ríkinu eru í starfsmannafélagi.

IAM gerði tilraun til að sannfæra starfsmenn Boeing í Suður-Karólínu um ávinninginn af því að vera í stéttarfélagi hvað varðar betri laun og aukinn réttindi en án árangurs.

Starfsmenn í samsetningarsal Boeing í Suður-Karólínu er sagðir með mun lægri laun en starfsbræður þeirra í verksmiðjunum í Everett og getur munað allt að helmingi á launum starfsmanna.

Meðallaun starfsmanna í Suður-Karólínu eru um 493.000 krónur á mánuði á meðan starfsmenn í Everett í Washington-fylki eru með um 749.000 krónur í mánaðarlaun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga