flugfréttir

Delta deilir hagnaðinum - 80.000 starfsmenn fá 1.5 milljón hver

- Fjórðungur hagnaðarins fer til starfsfólksins

16. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:26

Yfir 80 þúsund starfsmenn Delta Air Lines fengu sl. þriðjudag aukagreiðslu upp á 1.5 milljón króna

Delta Air Lines hefur deilt fjórðung af rekstrarhagnaði félagsins til starfsmanna sinna sem fengu himinháar greiðslur inn á bankareikninginn sinn sl. þriðjudag.

Hagnaður Delta Air Lines árið 2016 nam 4.4 milljörðum bandaríkjadala sem samsvarar 483 milljörðum króna en félagið greiddi þann 14. febrúar 80.000 starfsmönnum alls 120 milljarða sem gafngildir því að hver starfsmaður fékk bónusgreiðslu upp á 1.500.000 krónur.

Af þeim 120 milljörðum króna sem starfsmenn fengu frá Delta þá greiddust 43 milljarðar króna til þeirra starfsmanna sem vinna í Atlanta þar sem flugfélagið hefur höfuðstöðvar sínar en þar starfa 32.000 starfsmenn.

Hagnaður Delta Air Lines í fyrra var 2 prósentum lægri en árið 2015 þegar félagið skilaði inn 494 milljarða króna hagnaði samanborið við 483 milljarða í fyrra.

„Ekkert fyrirtæki, og svo sannarlega ekkert flugfélag, hefur deilt einum milljarði bandaríkjadala með starfsmönnum sínum“, sagði Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines í yfirlýsingu frá félaginu.

Hagfræðingur við háskólann í Georgíu segir að áhrifin af greiðslunum af hagnaðinum til starfsfólksins séu metin á 105 milljarða króna þar sem fjöldi verslanna, fyrirtækja og veitingastaða í Atlanta eigi eftir að njóta góðs af upphæðinni sem styrkir efnahagskerfi borgarinnar.

Delta hefur sl. 5 ár deilt hagnaði af rekstri sínum og hefur félagið því samtals greitt út hátt í 540 milljarða króna til starfsfólksins frá árinu 2012.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga