flugfréttir
Juneyao Airlines pantar fimm Dreamliner-þotur frá Boeing
Tölvugerð mynd af Boeing 787-9 þotu í litum Juneyao Airlines
Kínverska flugfélagið Juneyao Airlines hefur staðfest pöntun sína hjá Boeing í fimm Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9 en þetta er fyrsta pöntun félagsins til Boeing og einnig fyrsta breiðþotupöntun félagsins.
Pöntunin er metin á 1.3 milljarð bandaríkjadala sem samsvarar 145 milljörðum króna en flugfélagið
hefur einnig tryggt sér kauprétt á fimm vélum til viðbótar.
Juneyao Airlines var stofnað fyrir 12 árum síðan og hóf flugrekstur árið 2006 en félagið hefur aðsetur
í Shanghai.
Floti félagsins samastendur einungis af Airbus-þotum úr A320 fjölskyldunni sem telja 59 þotur
af gerðinni Airbus A320 og Airbus A321.
Félagið flýgur að mestu innanlandsflug í Kína auk þess sem félagið flýgur til 12 áfangastaða í Japan, Suður-Kóreu
og í Tælandi en Juneyao Airlines ætlar sér að hefja flug til fjarlægari áfangstaða með Dreamliner-þotunum
og auka umsvif sín í millilandaflugi.
Juneyao Airlines stefnir m.a. á að hefja flug til Norður-Ameríku, Evrópu og til Ástralíu fyrir árið 2020
með nýju Dreamliner-vélunum sem verða afhentar frá árinu 2018 til 2019 með möguleika á fimm til viðbótar sem yrðu þá afhentar frá 2019 til ársins 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.