flugfréttir

Boeing 757 þotur Icelandair fá „Scimitar Blended Winglets“

- 17 þotur verða komnar með nýju vænglingana fyrir sumarið

17. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:48

Scimitar Blended Winglets vænglingarnir eru þróaðir af Aviation Partners Boeing

Boeing 757 þotur Icelandair gangast nú undir uppfærslur á vænglingum en verið er að setja „Scimitar Blended Winglets“ vængenda á vélar félagsins.

Icelandair er fyrsta flugfélagið í Evrópu sem fær Scimitar Blended Winglets vænglinga á Boeing 757-200 þotur en vænglingarnir eru þróaðir af fyrirtækinu Aviation Partners Boeing sem framleiðir vænglinga á Boeing 737, Boeing 757 og 767.

„Scimitar Blended Winglets“ er tvískiptur vænglingur sem byggir á núverandi hönnun af „blended winglet“ sem Boeing 757 þotur Icelandair hafa haft frá árinu 2006 en nýja hönnunin kemur með oddhvössum, aftursveigðum enda sem dregur úr loftmótsstöðu og eykur flughæfni vélanna enn meira.

Scimitar Blended Winglets settur á væng á Boeing 757 þotu
Icelandair

Með nýju vænglingunum munu Boeing 757 vélar Icelandair eyða minna eldsneyti með tilkomu betra loftflæðis sem gerir flugeiginleika vélanna hagkvæmari vegna „Scimitar Blended Winglets“ vænglinganna.

Þá munu vænglingarnir bæta frammistöðu vélanna í flugtaki, draga úr viðhaldi á hreyflum og minnka kolefnislosun vélanna á flugi.

Nýju vænglingarnir munu auka eldsneytissparnað um 1.1% á hverja Boeing 757 þotu umfram þá vænglinga sem voru til staðar sem þýðir að hver þota verður allt að 6 prósent sparneytnari heldur en sú Boeing 757 þota sem hefur enga vænglinga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga