flugfréttir
Eurowings hættir með Bombardier CRJ-900 þoturnar
Bombardier CRJ-900 þota Eurowings
Eurowings, dótturfélag Lufthansa, hefur hætt með Bombardier CRJ-900 þoturnar en félagið stefnir að því að vera eingöngu með þotur frá Airbus í flota sínum á næstunni.
Fjórar Bombardier CRJ-900 þotur voru eftir í flota Eurowings undir það síðasta en seinasta flugið með vélunum var flogið þann 15. febrúar frá Karlsruhe til Hamborgar.
Með því lýkur 16 ára sögu Canadair-vélanna en sú fyrsta, sem var af gerðinni CRJ-200,
kom í flota Eurowings árið 2001.
34 flugvélar eru í flota Eurowings en Airbus 320 er algengasta vélin og eru 24 slíkar þotur
í flota félagsins sem hefur einnig þrjár Airbus A319, sex Airbus A330 breiðþotur og
eina Boeing 737-800 vél.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.