flugfréttir
Fyrsta Boeing 787-10 þotan frumsýnd við hátíðlega athöfn í Suður-Karólínu
- Lengsta Dreamliner-þotan af þeim öllum
Dennis Muilenberg, framkvæmdarstjóri Boeing, heldur ræðu
Mikið hefur verið um dýrðir í dag við verksmiðjur Boeing í Suður-Karólínu núna seinnipartinn þegar lengsta útgáfan af Dreamliner-þotunni, Boeing 787-10, leit dagsins ljós í fyrsta sinn að viðstöddum þúsundum gesta og starfsmanna Boeing í Charleston.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var viðstaddur hátíðlega athöfn sem fram fór á sjöunda tímanum
í kvöld að íslenskum tíma er fyrsta Boeing 787-10 þotan var frumsýnd í blíðviðri og 21 stigs hita.
„Þetta er sögulegur viðburður þar sem þetta er fyrsta Boeing 787-10 þotan sem smíðuð hefur verið og það hérna í Charleston. Þetta er ótrúleg flugvél sem mun breyta heiminum fyrir viðskiptavini okkar“, sagði Dennis Muilenberg,
framkvæmdarstjóri Boeing í stuttri ræðu sinni áður en hann gaf Donald Trump orðið.
„Þetta svæði hérna var bara mýri fyrir 7 árum síðan - Í dag, eftir 220 milljarða króna fjárfestingar, stendur hérna
nútímaleg flugvélaverksmiðja sem framleiðir tæknivæddustu farþegaþotur í heimi“, sagði Muilenberg.
Þúsundir voru viðstaddir athöfnina í dag er Boeing frumsýndi fyrstu Boeing 787-10 þotuna
Trump sagði að „þetta væri svakalega flott flugvél“ fyrir aftan hann og hélt hann ræðu þar sem hann fór inn á mikilvægi iðnaðar í Bandaríkjunum og atvinnumál auk þess sem hann ræddi um fyrsta flug Wright-bræðra.
Fyrsta Boeing 787-10 þotan var dregin út úr samsetningarsal í morgun að austurstrandartíma
„Þessi flugvél getur flogið í hálfan sólarhring áður en hún lendir aftur. Nafnið segir allt um vélina: „Dreamliner“ - frábært
nafn - og landið okkar gerir allt til að láta drauma rætast“, sagði Trump.
Trump kom einnig að máli um Air Force One þotuna og sagði meðal annars að það væri ótrúlegt að sú vél væri orðin 30 ára gömul. - „Þessi
flugvél er 30 ára gömul - Hvað getur litið vel út komið á fertugsaldur? - jú, það er flugvél“, sagði Trump og
spurði starfsmenn Boeing og boðsgesti hvort þeim litist betur á, Air Force One vélina eða nýju Dreamliner-vélina.
Myndband af ræðu Dennis Muilberg, framkvæmdarstjóra Boeing, og Donaldp Trump, Bandaríkjaforseta
„Þessi flugvél er sú sparneytnasta og hagkvæmasta í sínum flokki og er þetta afrakstur þrotlausrar vinnu og erfiðis
af hálfu starfsmanna Boeing auk birgja og annarra aðila um allan heim sem lögðu hönd á plóg“, sagði
Kevin McAllister, forstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing í ræðu sinni.
„Við þekkjum okkar viðskiptavini og þar á meðal Singapore Airlines, sem verða fyrstir til að fá þessa vél, og við vitum
að þeir eiga eftir að elska þessa vél og við getum ekki beðið eftir að sjá hana fljúga“, sagði McAllister.
Níu viðskiptavinir hafa pantað alls 149 eintök af Boeing 787-10
Boeing 787-10 er 5.5 metrum lengri en Boeing 787-9 þotan og getur vélin tekið allt að 330 farþega en þó ekki fleiri
en 440 eftir útfærslum.
Boeing 787-10 hefur þó minnsta flugþolið en hún getur flogið 11,900 kílómetra á meðan Boeing 787-8 getur flogið
13,600 kílómetra og þá hefur Boeing 787-9 flugdrægi upp á 14,100 kílómetra.
Alls hafa níu flugfélög og viðskiptavinir pantað 149 eintök af Boeing 787-10 sem kemur á markaðinn árið 2018
en Boeing stefnir á að fyrsta tilraunavélin muni fljúga jómfrúarflugið á þessu ári.
Meðal þeirra flugfélaga sem hafa pantað Boeing 787-10 eru Air France-KLM, Air Lease Corporation, ANA (All Nippon
Airways), British Airways, Etihad Airways, EVA Air, GECAS, Singapore Airlines og United Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.