flugfréttir
Gera upp 43 ónotaða flugvelli til að efla flugsamgöngur
Boeing 737 farþegaþota á indverskum flugvelli
Flugmálayfirvöld á Indlandi ætla að efla flugsamgöngur í innanlandsfluginu í landinu með því að koma 43 flugvöllum í landinu aftur í rekstrarlegt horf.
Um er að ræða flugvelli sem hafa ýmist ekki verið haldið við eða hafa ekki verið notaðir
fyrir áætlunarflug og stendur til að endurnýja aðstöðu á þeim og koma þeim í rekstarhæfilegt ástand
svo þeir geti tekið við farþegaflugvélum í áætlunarflugi.
Indversk flugmálayfirvöld hafa nú þegar fengið tilboð frá ellefu verkfræðistofum sem hafa boðið
sig fram til að sjá um framkvæmdirnar.
Gert er ráð fyrir að það muni taka um mánuð að gefa flugfélögum heimild til að fljúga um þessa 43 flugvelli sem
verða tilbúnir fyrir áætlunarflug innan árs og munu fyrstu flugfélögin geta hafið flug um þá fyrstu á næstu
mánuðum.
Stjórnvöld á Indlandi hafa gripið til aðgerða til að stilla fargjöld í hóf og hefur verið ákveðið að ekki verði
dýrara en 4.000 krónur að fljúga til þeirra fyrir hvert flug sem tekur eina klukkustund.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.