flugfréttir

Nýtt flugfélag mun hefja flug í Norður-Noregi í vor

19. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:05

Bombardier Dash-8-100 flugvél FlyViking

Nýtt flugfélag sem nefnist FlyViking mun hefja flugrekstur í Noregi í næsta mánuði.

FlyViking er einkaflugfélag sem stofnað var árið 2015 af hópi fjárfesta og hluthafa en stofnandinn, Ola Giæver, starfaði hjá norska flugfélaginu Widerøe en var rekinn þaðan vegna ósátta innan stjórnar félagsins.

Ola ákvað í kjölfarið að því að stofna sitt eigið flugfélag sem myndi einblína á flug milli flugvalla í norðurhluta Noregs og verður flogið til þeirra bæja sem hafa flugvelli sem geta ekki tekið á móti þotum.

FlyViking, sem hefur höfuðstöðvar í Tromsø, hefur fengið tvær Bombardier Dash 8-100 flugvélar í flotann sem munu fljúga m.a. til Hammerfest, Bodø og Svolvær.

Hið nýja flugfélag mun hefja áætlunarflug í apríl

Áætlað er að fyrsta farþegaflugið verið flogið þann 18. apríl með flugi til Svolvær.

FlyViking sótti í fyrra um leyfi til að sinna farþegaflugi þegar samgönguráðuneyti Noregs auglýsti útboð í flug á 13 flugleiðum en bæði FlyViking og DAT (Danish Air Transport) töpuðu fyrir Widerøe sem fékk leyfið fyrir öllum flugleiðunum.

FlyViking fékk flugrekstarleyfi um miðjan febrúar til að fljúga með allt að 20 farþega í hverri flugferð en Dash 8-100 vélarnar taka mest 39 farþega.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga