flugfréttir

Myndband: Orrustuþotur fljúga til móts við þotu eftir að samband rofnaði

- Flugmennirnir slóu óvart inn ranga tíðni fyrir Prague Center

19. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 21:47

Myndbandið var tekið af flugmönnum sem voru að fljúga á sömu leið yfir Þýskalandi sl. fimmtudag

Tvær orrustuþotur frá þýska flughernum flugu til móts við farþegaþotu af gerðinni Boeing 777-300 frá indverska flugfélaginu Jet Airways eftir að samband rofnaði við vélina sl. fimmtudag.

Vélin var á leið frá Bombay til Heathrow-flugvallarins í London með 330 farþega innanborðs og fimmtán manna áhöfn þegar flugumferðarstjórnin í Prag náði ekki sambandi við vélina en skömmu áður hafði vélin yfirgefið flugumferðarstjórnina í Bratislava.

Tvær Eurofighter orrustuþotur voru á flugi í nágrenni vélarinnar þegar þær fengu beiðni um að fljúga að farþegaþotunni en skömmu síðar komst aftur á samband milli vélarinnar og flugumferðarstjórnarinnar.

Jet Airways þotan lenti skömmu síðar á Heathrow-flugvellinum í London

Samt sem áður flugu herþoturnar að vélinni til öryggis og voru flugmenn vélarinnar látnir vita að komu þotnanna.

Talið er að flugmenn vélarinnar hafi óvart stillt ranga tíðni er þeir skiptu yfir á tíðni Prague Center eftir að hafa yfirgefið Bratislava Center. Rétta tíðnin var 132.890MHz en flugmennirnir stilltu inn tíðni 132.980MHz.

Orrustuþoturnar komu að Jet Airways þotunni skammt norðaustur af Frankfurt en myndband af því er herþoturnar komu að vélinni náðist á eftirfarandi myndband sem tekið var út um glugga á stjórnklefa á annarri farþegaþotu sem var að fljúga á sömu flugleið.

Jet Airways þotan lenti heil á höldnu á Heathrow-flugvellinum skömmu síðar en flugmennirnir hafa verið leystir af störfum á meðan rannsókn fer fram á atvikinu.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga