flugfréttir

Air France-KLM mun hefja flug til sjö nýrra borga í ár í langflugi

20. febrúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:57

Airbus A380 risaþota Air France og Boeing 777-300ER þota KLM Royal Dutch Airlines

Air France og KLM Royal Dutsch Airlines munu hefja flug til sjö nýrra áfangastaða í langflugi á þessu ári með tilkomu nýrra þotna sem félögin munu bæði fá afhent.

Félögin, sem eru í eigu Air France-KLM, eiga von á þremur Boeing 787-9 þotum sem fara í flota Air France en KLM mun fá tvær nýjar Boeing 777-300ER þotur í ár.

Air France mun hefja flug þann 28. febrúar til Accra í Ghana en flugfélagið franska flýgur nú þegar til 28 landa í Afríku en þá mun Air France byrja að fljúga til Malé á Maldívíeyjum þann 1. nóvember.

KLM Royal Dutch Airlines mun hefja flug til 8 nýrra áfangastaða á árinu en af þeim eru fimm borgir í langflugi sem eru Monróvía í Líberíu en flug þangað hefast þann 29. mars og skömmu síðar mun félagið byrja að fljúga til Freetown í Sierra Leone.

Þá mun KLM byrja aftur að fljúga til Minneapolis frá og með 27. mars en félagið hætti að fljúga þangað árið 2001 en síðan þá hefur Icelandair verið eina flugfélagið sem hefir flogið þangað frá Evrópu.

Fjórði áfangastaður KLM í langflugi á árinu er Cartagena í Kólumbíu og hefst flug þangað þann 28. mars en sama dag mun félagið hætta að fljúga til kólumbísku borgarinnar Cali.

Að lokum mun KLM hefja flug til eyjarinnar Mauritius í Indlandshafi þann 30. október og mun félagið fljúga þangað með Boeing 787-9 þotum.

Aðrir borgir sem KLM mun hefja flug til á þessu ári eru Graz, Split í Króatíu, Cagliari og Catania á Ítalíu, Gdansk, Porto og Malaga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga