flugfréttir
Alitalia aflýsir 60 prósent flugferða vegna verkfalls
Alitalia mun fella niður 6 af hverjum 10 flugferðum á fimmtudag
Ítalska flugfélagið Alitalia mun þurfa að fella niður 60 prósent af öllu áætlunarflugi sínu næstkomandi fimmtudag vegna verkfallsaðgerða.
Aðgerðirnar eru á vegum tveggja verkalýðsfélaga vegna niðurskurðs sem framundan er hjá
félaginu sem leggst illa í starfsmenn flugfélagsins þar sem það mun hafa áhrif á launamál þeirra.
Nokkrar samningaviðræður hafa farið fram en án árangurs og munu verkföllin standa yfir
í einn sólarhring og eiga sér stað yfir sitthvort tímabilið yfir daginn.
Alitalia hefur þegar gripið til aðgerða með því að bóka farþega með öðrum flugferðum eins
fljótt og möguleiki er en farþegum býðst einnig að fá endurgreitt.
Flugfélagið mun nota stórar þotur á einhverjum Evrópuleiðum til að koma sem flestum
á áfangastað.
Alitalia hefur skorið verulega niður og endurnýjað flugflota frá því félagið var einkavætt árið 2008 en félagið hefur einblínt á innanlandsflug og flug til Evrópu sem er sá markaður sem hefur verið hvað erfiðastur fyrir félagið vegna samkeppni frá lágfargjaldarfélögunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.