flugfréttir
Lamborghini notaður sem „follow me“ bíll í Bologna
- Myndband: Fylgir Boeing 777-300ER þotu Emirates að hliði
Lamborghini Huracán fylgir þotu Emirates að hliði
Það er ekki á hverjum degi sem að farþegaþota fær fylgd með Lamborghini en það gerðist þó á dögunum á Ítalíu farþegum til mikillar undrunar.
Boeing 777-300ER frá Emirates var nýlent á flugvellinum í Bologna eftir flug frá Dubai
þegar skærgulur Lamborghini Huracán kom aðvífandi og fylgdi vélinni frá brautinni.
Ítalir eru stoltir af þeim ökutækjum sem framleiddir eru í landinu og þá
sérstaklega af Lamborghini og Ferrari en báðir bílarnir eru framleiddir „mótordalnum“ á Ítalíu
í borgunum Bologna og Modena.
Guglielmo Marconi flugvöllurinn í Bologna ákvað í haust að uppfæra „eltu mig“ bílana, sem notaðir
eru til að fylgja flugvélum um svæðið, með Lamborghini-sportbílum og eru þeir notaðir
til að fylgja erlendum flugfélögum í tengslum við auglýsingarherferð framleiðandans í samstarfi
við flugvöllinn.
Boeing 777-300ER þota Emirates er stærsta flugvélin sem lendir á flugvellinum í Bologna en þótt
að Lamborghini Huracán nái 320 km/klst hraða þá er það bara þriðjungur af flughraða
Boeing 777-300ER sem nær yfir 900 kílómetra hraða á klukkustund.
Hér að neðan má sjá myndband er Lamborghini bílinn fylgdi þotu Emirates að hliði á dögunum.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.