flugfréttir
EVA Air ætlar að hætta með Boeing 747 fyrr en áætlað var
EVA Air hefur í dag þrjár Boeing 747-400 þotur í flota sínum
Taívanska flugfélagið EVA Air hefur ákveðið að taka júmbó-þotuna fyrr úr umferð en núverandi áætlanir segja til um.
EVA Air hefur þrjár júmbó-þotur eftir í flotanum sem eru af gerðinni Boeing 747-400 og stóð til að síðasta
farþegaflugið með þeim yrði farið þann 28. október á þessu ári.
Stjórn félagsins hefur nú ákveðið að flýta þeirri dagsetningu um 2 mánuði og er stefnt á að síðasta júmbó-flugið
muni eiga sér stað þann 20. ágúst í sumar.
Síðasta flugið verður frá Shanghai til Taipei en félagið notar Boeing 747-400 vélarnar í dag
í flugi milli Taipei og Hong Kong, Peking, Macau, Seattle, Shenzhen og Vancouver.
EVA Air hefur leyst júmbó-þoturnar af hólmi með Boeing 777-300ER þotum en þá á félagið einnig von á því
að fá tuttugu Dreamliner-vélar af gerðinni Boeing 787-10 og fjórar af gerðinni 787-9.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.