flugfréttir
Móðurfélag British Airways sagt undirbúa pöntun í CS300 þotuna
- Færi mögulega í flota BA CityFlyer, Vueling og Aer Lingus
CS300 þotan á Reykjavíkurflugvelli
International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways, Iberia, Aer Lingus og Vueling, er sagt vera að undirbúa pöntun í CSeries-þotuna frá Bombardier.
Sú vél sem kemur til greina er CS300 þotan og verður tilkynnt um
pöntunina á næstunni en ekki kemur fram hversu margar þotur
verða pantaðar.
Samkvæmt heimildum munu vélarnar fara í flota British Airways og
munu þær fljúga undir merkjum BA CityFlyer en auk þess munu
einhverjar þotur fara til Vueling og Aer Lingus.
Öll flugfélög IAG hafa þotur frá Airbus í flotanum en BA CityFlyer
hefur þotur frá Embraer en ekki er vitað hvort CS300 vélarnar eiga
að leysa þær af hólmi eða bætast við flotann.
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri IAG, sagði í fyrra að CS300 þotan
væri tvímælalaust þota sem kæmi til greina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.