flugfréttir
Bombardier telur að sala á einkaþotum sé að aukast á ný
Einkaþotur frá Bombardier á flugsýningu í Singapore
Flugvélaframleiðandinn Bombardier telur að sala á einkaþotum eigi eftir að aukast á ný á þessu ári eftir að legið í lægð að undanförnu.
Dræm sala á einkaþotum hefur haft áhrif á
pantanir í slíkar vélar fyrir Bombardier og það
sama
hefur verið upp á teningnum hjá öðrum
flugvélaframleiðendum.
„Við erum sannfærðir um að botninum hefur
verið náð og leiðin á eftir að liggja upp á við
annaðhvort
síðar á þessu ári eða árið 2018“, segir Alain
Bellemare, framkvæmdarstjóri Bombardier.
Bombardier framleiðir einkaþotur á borð við
Learjet, Challenger og Global en framleiðsla
á þeim hefur verið rekin með tapi í þrjú ár í röð
en framhaldið mun ráðast af efnahagsmálum
í Bandaríkjunum.
Bellemare segir að aukin hagvöxtur í viðskiptum
í Bandaríkjunum og sala á einkaþotum haldist
oft í hendur.
Samt sem áður gerir Bombardier ráð fyrir að
afhenda 135 einkaþotur í ár sem er 28 þotum
minna en árið 2016 þegar 163 einkaþotur voru
afhentar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.