flugfréttir
Myndband: Hjólastell féll saman á Dash-8-400 vél á Schiphol
Mynd sem tekin var á vettvangi í dag á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam
Hjólastell féll saman í lendingu á farþegaflugvél frá Flybe af gerðinni Dash-8-400 á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam í dag.
Vélin var að koma frá Edinborg og var að lenda á braut 22 (Oostbaan) rétt fyrir klukkan fjögur í dag
þegar hægra hjólastellið gaf sig.
Um borð voru 59 farþegar og sakaði engann en flugbrautinni var lokað í kjölfarið og var öðrum flugvélum
gert að hætta við aðflugið og fara í fráflug („go around“) þar sem vélin staðnæmdist á brautinni eftir atvikið.
Flugmenn vélarinnar lýstu yfir neyðarástandi í kjölfarið og létu vita að hjólastellið hafði fallið saman við
lendinguna.
Mikið hvassviðri var í Amsterdam í dag þar sem stormurinn Doris gengur nú yfir vesturhluta Evrópu
en verst hefur ástandið verið á Írlandi, Bretlandseyjum, Lúxemborg og í Þýskalandi.
Hér að neðan má sjá myndband sem náðist ef lendingunni og því augnarbliki sem að hjólabúnaðurinn
féll saman.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.