flugfréttir
Reyna koma aftur á flugi milli Serbíu og Kosovo
Frá flugvellinum í Kosovo
Stjórnvöld í Serbíu hafa stofnað sérstakan vinnuhóp sem er ætlað að vinna að því að koma aftur á fót flugsamgöngum milli Serbíu og Kosovo.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem stjórnvöld í Serbíu
og Kosovo hafa rætt um flug milli landanna
tveggja en í heil 20 ár hefur ekkert farþegaflug
verið flogið á milli borganna Belgrade og
Pristina.
Þegar sáttaumræður milli landanna tveggja fóru
fram árið 2015 var áætlað að flug milli landanna
myndi hefjast að nýju á næstu mánuðum en þrátt
fyrir það hefur ekkert orðið að því.
Starfshópurinn sem hefur verið myndaður
samanstendur af aðilum frá serbneska
varnarmálaráðuneytinu,
flugher Serbíu, utanríkisráðuneytinu,
innanríkisráðuneytinu og fleiri embættum.
Lofthelgin yfir Kosovo er í dag stjórnað af
fyrirtækinu Hungaro Control í Ungverjalandi en
um 15 þúsund farþegar fara um flugvöllinn í
Pristina í hverri viku en flestir fljúga þaðan
til Zurich.
Alls eru 18 flugfélög sem fljúga til Pristina en
meðal þeirra eru Air Berlin, Austrian Airlines,
easyJet,
Edelweiss Air, Eurowings, Germania,
Norwegian, SAS, Turkish Airlines og Wizz Air.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.