flugfréttir
Yfirmaður BA segir fréttir um pöntun í CS300 þotuna rangar
CS300 þotan frá Bombardier
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri International Airlines Group (IAG), móðurfélags British Airways og Iberia, vísar sögusögnum á bug um að verið sé að undirbúa pöntun í CS300 þotuna frá Bombardier.
Fyrr í vikunni var greint frá því að til stæða að leggja inn pöntun í CSeries-þotuna
sem ætti að fara í flota BA CityFlyer, Vueling og Aer Lingus en í gær
sagði Walsh að þær fréttir væru út úr kortinu og alls engin rök fyrir þeim.
Það voru fjölmiðlar á Norður-Írlandi sem greindu frá fyrirhugaðri pöntun
IAG í CS300 þotuna en Walsh segir hinsvegar að á næstu vikum
verði greint frá pöntun félagsins sem til stendur að leggja inn í nýjar þotur
í sumar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.