flugfréttir
Wizz Air mun fljúga til Íslands frá Riga
- Áttundi áfangastaðurinn sem félagið mun fljúga frá til Keflavíkur
Airbus A320 þota Wizz Air
Lágfargjaldafélagið Wizz Air hefur bætt enn öðrum áfangastaðnum við leiðarkerfi sitt hingað til lands en Riga í Lettlandi verður 8. borgin sem félagið mun fljúga frá til Keflavíkurflugvallar.
Wizz Air er ekki fyrsta flugfélagið til að fljúga hingað til lands frá Riga
en airBaltic byrjaði að fljúga til Keflavíkurflugvallar frá höfuðborginni
lettnesku sumarið 2015.
Wizz Air byrjar að fljúga milli Keflavíkur og Riga þann 25. júní í sumar
en flogið verður tvisvar í viku með Airbus A320 þotum.
Brottför frá Riga er klukkan 19:55 og lent í Keflavík klukkan 21:00 en brottför
til baka frá Íslandi er klukkan 21:35 og lent í Riga klukkan 04:20.
Wizz Air flýgur í dag til Íslands frá Búdapest, Gdansk, Vilnius og Varsjá en í vor
mun félagið bæta við Wroclaw, Prag, Katowice og Riga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.