flugfréttir
Oman Air fær sína fyrstu Boeing 787-9
Fyrsta Boeing 787-9 þota Oman Air
Oman Air hefur tekið við sinni fyrstu Dreamliner-þotu sem er af gerðinni Boeing 787-9 en félagið hefur nú þegar fjórar Boeing 787-8 vélar í flotanum.
Oman Air pantaði Dreamliner-vélarnar árið 2011 en Boeing 787-9 vélarnar eru teknar
á leigu gegnum flugvélaleiguna CIT Aerospace og á félagið von á þremur Boeing 787-9 vélum
til viðbótar til ársins 2018.
Fyrstu 787-9 vélinni var á dögunum flogið afhendingarflugið frá verksmiðjum Boeing í Everett til
Muscat þar sem vélin lenti þann 24. febrúar.
Oman Air hefur 50 þotur í flotanum sem samanstendur af vélum af gerðinni Boeing 737-800 og -700,
Airbus A330, Boeing 737-900ER, Boeing 787-8 og 787-9 og Embraer 175.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.