flugfréttir
MRJ þotan fer í prófanir í miklum kulda í Flórída
Mitsubishi Regional Jet (MRJ)
Ein af Mitsubishi Regional Jet (MRJ) tilraunaþotunum hefur verið send til Flórída þar sem hún mun gangast undir prófanir í miklum kulda á Eglin Air Force Base herflugvellinum.
Ekki fer þó mikið fyrir kulda í Flórída þar sem í dag er 21 stigs hiti
á Eglin Air Force Base en á flugvellinum er að finna McKinley Climatic Laboratory rannsóknarstöðina þar sem staðsett er sérstakt flugskýli þar sem hægt er að stilla hitastigið niður
í allt að 62 stiga frost.
Mitsubishi Regional Jet (MRJ) þotan japanska verður prófuð fyrir gríðarlegu frosti og öðrum veðurfarslegum
skilyrðum sem er liður í að fá flughæfnisvottun fyrir vélarnar en flestar prófanirnar fara fram í Moses Lake
í Bandaríkjunum.
Þetta er fyrsta prófunin sem fer fram á MRJ þotunni annars staðar í Bandaríkjunum utan
Washington-fylkis þar sem vélarnar þrjár gangast undir flugprófanir en fjórða tilraunavélin verður þó í prófuð í Japan.
"Veður-flugskýlið" (Building 440) er 5.100 fermetrar á stærð og var skýlið hannað á fimmta áratugnum til að hýsa vélar á stærð við B-29 Superfortress en m.a. hafa Dreamliner-vélarnar verðið prófaðar þar fyrir miklum hita og kulda.
Hitastigið í skýlinu má stilla upp í 74 °C gráður og alveg niður í 62 stigs frost. Þá er hægt að líkja eftir 380 millimetra rigningu í skýlinu, stormi og einnig hægt að láta snjóa.
Building 440 er „veður-flugskýlið“ á Eglin Air Force Base
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.