flugfréttir
Breytingar verða gerðar á NOTAM útgáfu í apríl í vor
- Nýrri númeraröð verður bætt við og C-númeraröð verður send út á ensku
Nánar má sjá breytingar á NOTAM á vef Samgöngustofu
Nýtt fyrirkomulag á útgáfu NOTAM verður tekið í notkun þann 27. apríl næstkomandi en bætt verður við nýrri NOTAM-röð, sem verður B-númeraröð.
Númeraröðin mun innihalda upplýsingar fyrir flugvelli og lendingarstaði á Íslandi sem hafa blindaðflug að frátöldum alþjóðaflugvöllunum (BIKF, BIRK, BIAR og BIEG).
Númeraröðin mun einnig innihalda upplýsingar varðandi fjarskipti, leiðsöguvirki og leiðsöguaðvaranir en B- númeraröðin verður á sama sniðmáti og A-númeraröðin sem er í notkun í dag.
C-númeraröð verður einnig breytt. Verður hún gefin út á ensku og sett á sama sniðmát og A-númeraröð. Færri flugvellir og lendingarstaðir verða í C-númeraröð þar sem flugvellir og lendingarstaðir með blindaðflug færast yfir í B-númeraröð.
Með nýrri NOTAM númeraröð geta viðskiptavinir haft meira val um hvaða upplýsingar henta þeim og einnig verður meira samræmi á NOTAM útgáfu, þar sem allar númeraraðirnar verða með sama sniðmáti og á sama tungumáli.
Nánari upplýsingar má finna í upplýsingarbréfi AIC A 001/2017 í AMDT 001/2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.