flugfréttir
Heimilislaust fólk farið að taka yfir flugvöllinn í Atlanta
- Stjórn Hartsfield-Jackson flugvallarins getur lítið gert í vandanum
Heimilislaus maður á leið út á Hartsfield-Jackson flugvöllinn á köldum janúarmorgni
Það er ekki óalgeng sjón að sjá fólk sofa í flugstöðvum á alþjóðaflugvöllum en í slíkum tilvikum er um að ræða farþega sem eru að bíða eftir flugi.
Það eru samt ekki það sama upp á teningnum á Hartsfield Jackson flugvellinum í Atlanta
þar sem stór hluti þeirra sem nota flugstöð vallarins sem svefnstað er heimilislaust fólk sem
er farið að velja Atlanta-flugvöllinn sem næsturstað í auknu mæli.
Yfirmaður Hartsfield-Jackson flugvallarins segir að um slæmt ástand sé að ræða þar
sem flugvöllurinn getur lítið gert til að koma í veg fyrir að heimilislaust fólk setjist að á flugvellinum
þar sem engar reglur séu til sem banna almenningi að vera í flugstöðinni.
Ein heimilislaus kona sem fjölmiðlar ræddu við sagðist ekki hafa neinn pening til að kaupa sér mat
á flugvellinum en sagðist vera það lánsöm að sumir farþegar hafi gefið henni aur eða mat.
Þótt að heimilislausa fólki hafi ekki verið almennt til trafala þá hafa komið upp atvik þar sem fólkið hefur verið til vandræða og þá sérstaklega þegar kvölda tekur en dæmi eru um að sumir hafi kastað af sér vatni í ruslatunnur
í flugstöðinni innan um farþega.
Þá er að finna færslu á Facebook þar sem farþegi segir að allt heimilislausa fólkið hafi tekið alla bestu staðina til að liggja er hann var að leita að bekk til að bíða eftir flugi.
Stjórn flugvallarins hefur farið fram á að borgarstjórn Atlanta taki á vandanum en borgin
hefur þegar úrræði til staðar og húsnæði fyrir heimilislaust fólk en ekki er hægt að neyða það til að hætta
velja flugvöllinn sem næturstað.
Heimilislaus maður sofandi í flugstöðinni
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.