flugfréttir
FedEx eina fraktflugfélagið til að hefja flug til Kúbu
Fraktflugvélar FedEx á flugvellinum í Memphis
Vöruflutningarisinn FedEx mun í haust hefja fraktflug til Kúbu og bæta Varadero við leiðarkerfi sitt.
FedEx var eina fraktflugfélagið sem fékk úthlutað leyfi frá bandarískum stjórnvöldum til að fljúga til
Kúbu og stóð til að félagið myndi hefja fraktflug til Kúbu í apríl í vor.
Félagið hefur hinsvegar frestað því um hálft ár vegna nokkurra atriða sem þurfa að vera komin á hreint
áður en flugið hefst og þá stendur félagið í skrifræði við stjórnvöld á Kúbu sem þarf að leysa.
FedEx fékk leyfi til að fljúga 5 fraktflug í viku milli Miami og Varadero en meðal bandarískra flugfélaga
sem fengu leyfi til að fljúga til Kúbu, og hafa þegar hafið flug þangað, eru American Airlines, Alaska
Airlines, Delta, Frontier Airlines, JetBlue, Southwest, Spirit Airlines og United Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.