flugfréttir
Delta hættir að fljúga MD-88 þotum um LaGuardia-flugvöll
- Minni hávaðamengun fyrir íbúa New York
McDonnell Douglas MD-88 þota Delta Air Lines
Delta Air Lines hætti í gær að nota McDonnell Douglas MD-88 þoturnar í áætunarflugi til og frá LaGuardia-flugvellinum í New York.
Þetta ákvað flugfélagið í þeim tilgangi að draga úr þeim hávaða sem vélarnar valda en MD-88 vélarnar eru hávaðasamari
en yngri og sparneytnari þotur og mun Delta því nota í auknu mæli vélar á borð við Boeing 737 í áætlunarflugi
til LaGuardia í bland við MD-90 þotur.
Með þessu mun draga úr hljóðmengun fyrir milljónir íbúa New York borgar og sérstaklega fyrir þá sem búa í Queens
og Bronx í nágrenni við LaGuardia-flugvöll.
Chuck Schumer, öldungardeildarþingmaður í New York, segir þessa ákvörðun Delta vera skref í rétta átt er kemur
að umhverfissjónarmiðum með tilliti til íbúa sem búa undir einni annasömustu lofthelgi í heimi.
Delta Air Lines hefur 116 McDonnell Douglas MD-88 þotur í flota sínum en í sumar verður byrjað á því að taka þær
fyrstu úr umferð með því að leysa þær af hólmi með Airbus A321 þotum og vélum af gerðinni Bombardier CS100.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.