flugfréttir

Kvarta undan flugfélögunum frá Miðausturlöndum til ESB

- Hafa hætt flugi til 30 borga í Asíu vegna erfiðrar samkeppni

4. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:11

Farþegaþotur frá Emirates og Qatar Airways

Stærstu flugfélög Evrópu og þar á meðal Lufthansa, Air France og KLM, hafa skrifað bréf til Evrópusambandsins þar sem þau lýsa yfir áhyggjum sínum vegna umsvifa flugfélaganna frá Miðausturlöndum.

Í bréfinu segir meðal annars að félögin hafi upp á síðkastið neyðst til þess að hætta að fljúga til fjölda áfangastaða í Asíu þar sem flugfélög á borð við Emirates eru farin að gera samkeppnina óbærilega með fjölda flugferða til Evrópu.

Farþegar sem annars myndu fljúga með evrópskum flugfélögum til Asíu kjósa því frekar að panta flug með Emirates til Dubai og halda þaðan áfram með tengiflugi áfram til Asíu.

Emirates blæs á þessar sögusagnir og segir að samkeppnin frá þeim er langt í frá að vera skaðlega fyrir evrópsk flugfélög.

Violeta Bulc hefur barist fyrir hönd evrópskra flugfélaga í samkeppninni
við félögin frá Miðausturlöndum

„Þetta er deila þar sem stærstu flugfélögin í Evrópu eru að saka flugfélögin frá arabalöndunum um að hafa eyðilagt fyrir þeim flug til Asíulanda á meðan þau hafa í raun og veru verið að auka umsvif sín í Asíuflugi“, segir talsmaður Emirates sem bendir á að tölfræðin sínir að á 10 árum hafi sex evrópsk flugfélög aukið umsvif sín til Asíu um 17 prósent.

Violeta Bulc, sem á sæti í framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins, segir að bréfið frá flugfélögunum verði tekið til skoðunar en undir það rita stjórnarmeðlimir frá Lufthansa, Air France, KLM, Brussels Airlines, SWISS og Austrian Airlines.

Ef hægt verður að sanna að evrópsku flugfélögin hafi neyðst til að hætta flugi til Asíuanda vegna umsvifa frá stóru flugfélögunum við botni Persaflóa þá verður gripið til aðgerða en félögin segjast hafa hætt flugi til 30 áfangastaða í Asíu sl. ár.

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins vinnur nú þegar að því að setja saman lög sem veita ESB rétt á því að meina flugfélögum utan Evrópu að fljúga til álfunnar ef í ljós kemur að þau séu að skaða evrópsk flugfélög með óheiðarlegri samkeppni eða séu að fá ólögmæta styrki frá ríkisstjórnum sinna landa.

Emirates, Qatar Airways og Etihad Airways hafa öll verið að auka umsvif sín til Evrópu og einnig til Bandaríkjanna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga