flugfréttir

Saka American um að sniðganga reglur um þreytu flugmanna

4. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:08

Flugmaður um borð í stjórnklefa á Boeing 777 þotu

Flugmenn hjá American Airlines hafa gefið frá sér bréf með yfirlýsingu fyrir hönd starfsmannafélagsins þar sem þeir saka félagið um að sniðganga reglugerðir sem eiga að koma í veg fyrir að of þreyttir flugmenn séu látnir fljúga.

Dan Carey, formaður Allied Pilots Association, segir að American Airlines sé að stofna öryggi farþega og áhafna í hættu með því að hunsa reglur sem eiga að tryggja að þreyttur flugmaður sé látinn mæta til vinnu og sé ekki verið að framfylgja sáttmála sem gerður var árið 2013 varðandi þessi mál.

Í bréfinu kemur fram að félagið sé að taka mikla áhættu sem getur haft í för mér sér alvarlegar afleiðingar ef ástandið heldur áfram í sömu mynd.

Í bréfinu er vitnað í sáttmála um þreytuáhættuaðgerðir sem American Airlines er sagt vera að sniðganga en reglugerðinni er ætlað að uppræta og koma í veg fyrir að flugmenn séu að fljúga sem hafa ekki fengið nægilega hvíld.

Fram kemur að stjórn félagsins hafi ekki veitt sáttmálanum neina eftirfylgni, ekki komið á fundum þar sem til stóð að fara yfir stöðuna og taka ýmis atvik fyrir til að ræða lausnir á vandamálinu.

Dan Carey segir að félagið eigi að hætta að skipuleggja vaktir þar sem gert er ráð fyrir flugmönnum til starfa sem þegar hafa kvartað undan þreytu eða svefnleysi.

Flugvélar American Airlines á Dallas-Fort Worth flugvellinum

Talsmaður American Airlines segir að öryggi meðal farþega og áhafna komi ávalt í fyrsta sæti og verði bréfið tekið til skoðunar.

Flugmenn, sem eru meðlimir í Allied Pilots Association, lýstu sl. sumar yfir áhyggjum sínum yfir því að stjórn American Airlines hafði beðið flugmenn um að vinna meira en leyfilegur vinnutími segir til um í þeim tilgangi að halda áætlun félagsins yfir háannatímann yfir sumarið.

Nokkrir flugmenn sögðu að félagið hefði m.a beðið flugmenn um að minnka þann tíma sem fer í akstur milli flugbrauta og flugstöðva með því að „taxa“ á meiri hraða en eðlilegt þykir og nota flugleiðir sem voru ekki í samræmi við þær leiðir sem flugumferðarstjórn gerði ráð fyrir að þeir myndu fljúga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga