flugfréttir
Hætt við tilraunaflug með Boeing 757 til St. Helena
- Óvíst hvenær gerð verður önnur tilraun
Boeing 757 þota TAG Aviation
Hætt hefur verið með tilraunaflug með Boeing 757 til eyjunnar St. Helena en til stóð að fljúga einni slíkri vél til nýja flugvallarins á eyjunni sem hefur enn ekki verið hægt að taka í formlga notkun vegna sviptivinda.
Svissneska fyrirtækið TAG Aviation ætlaði sér að hefja tilraunaflug til eyjunnar þann 6. mars til að gera
rannsóknir á því hvernig er að fljúga Boeing 757 til St. Helena sem er ein afskekktasta eyja
heim, staðsett í miðju Atlantshafi milli Afríku og Suður-Ameríku.
TAG Aviation hefur hinsvegar slegið fluginu á frest út af rekstrarlegum ástæðum þar
sem vélin verður leigð út til flugfélags og vöknuðu upp efasemdir um þann tíma
sem tilraunaflugið myndi taka.
Þetta hefur valdið mörgum aðilum á St. Helena vonbrigðum þar sem margir vildu sjá
hvernig flugrekstur með Boeing 757 myndi takast á flugvellinum en flestir skilja þá staðreynd
að fyrirtækið setur áætlun með útleigu á vélinni í forgang.
Boeing 737 þota frá Comair á flugvellinum á St. Helena
Ekki er vitað hvenær TAG Aviation mun sjá sér fært að fljúga vélinni til St. Helena en það gætu
þó verið einhverjir mánuðir í að gerð verði önnur tilraun.
Tilraunaflugið er samstarf flugfélagsins Atlantic Star Airlines, sem hefur aðsetur á St. Helena, og
TAG Aviation og eru bæði fyrirtækin staðráðin í að framkvæmda þessar prófanir í betri tíma.
Boeing 757-200 þota TAG Aviation sem til stóða að nota við prófanirnar
Með slíkum prófunum er vonast til að hægt sé að fá raunhæfa mynd af starfsemi er snýr að
áætlunargerð fyrir áhafnir á Boeing 757 og þjónustu við vélina á flugvellinum.
Eitt og hálft ár er síðan að flugvél var lent í fyrsta sinn á flugvellinum á eyjunni í september
árið 2015 en tvö flugfélög ætluðu að hefja flug til St. Helena á þessu ári.
Bæði félögin hafa sett flugið á hilluna en flugmenn á Boeing 737-800 þotu frá Comair í Suður-Afríku sögðust sjaldan hafa upplifað eins mikið „wind shear“ og þegar þeir flugu tilraunaflug til eyjanna til að gera úttekt á lendingarskilyrðum.
Framkvæmdir við flugvöllinn í St. Helena kostaði eyjaskeggja og breska skattgreiðendur um 39 milljarða króna og hafa sumir spurt sig hvers vegna ekki voru kannaðar aðstæður fyrst gagnvart sviptivindum
áður en byrjað var að smíða flugvöllinn.
Hingað til hefur aðeins verið hægt að sigla til St. Helena og hafa mörg fyrirtæki á eyjunni undiðbúið sig fyrir komu ferðamanna með tilkomu
flugsamgangna en einhver bið verður á því þar sem ekki er búið að finna lausn á vandamálinu með þá vinda sem ríkja umhverfis flugbrautina sem er staðsett á milli fjalls og þverhnýpis ofan í sjó.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.