flugfréttir
Kanínur á flugbraut ollu árekstrarhættu á Indlandi
Boeing 737-800 þota SpiceJet í flugtaki
Kanínur ollu usla á flugvelli á Indlandi er þær komu sér fyrir á flugbraut með þeim afleiðingum að ein þota var stopp á brautinni á sama tíma og önnur vél var komin í flugtak.
Atvikið átti sér stað þann 24. febrúar sl. á flugvellinum í Ahmedabad er farþegaþota af
gerðinni Boeing 737-700 frá lágfargjaldafélaginu SpiceJet þurfti
að hætta við flugtak eftir að önnur þota frá IndiGo af gerðinni Airbus A320 náði ekki að yfirgefa
brautina á hinum endanum eftir lendingu þar sem kanínur voru á brautinni.
Það var flugumferðarstjóri sem kom auga á að IndiGo-vélin hafði ekki farið af brautinni
en á sama tíma var SpiceJet-þotan byrjuð að hefja flugtaksbrun.
Airbus A320neo þota frá IndiGo
IndiGo vélin var komin með nefhjólið inn á aksturbraut en stélendi vélarinnar var enn inn á flugbrautinni
sjálfri.
Talsmaður SpiceJet segir að á engum tímapunkti hafi aðskilnaður vélanna verið innan þeirra
marka sem telst óöruggt og hafi flugmennirnir farið eftir öllum tilmælum frá flugumferðarstjórum.
Flugmálayfirvöld á Indlandi rannsaka nú atvikið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.