flugfréttir

SAS leitar að stjórnarmeðlimum fyrir nýtt dótturfélag á Írlandi

- Scandinavian Airlines Ireland mun hefja starfsemi sína síðar á þessu ári

5. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:40

Airbus A320neo þota Scandinavian Airlines

Scandinavian Airlines (SAS) leitar nú að stjórnarmeðlimum til að stýra nýju dótturflugfélagi sem stofnað hefur verið sem mun koma til með að hafa bækistöðvar á Írlandi.

Flugfélagið, Scandinavian Airlines Ireland, hefur fengið til liðs við sig írsku ráðningarstofuna CAE Parc Aviation til að finna rétta aðila sem eiga að mynda sjö manna teymi sem munu stýra rekstri félagsins.

Þá stendur til að ráða 40 manns sem munu starfa hjá nýja félaginu og hefur nú þegar verið sótt um írskt flugrekstrarleyfi fyrir félagið.

SAS ætlar að færa út kvíarnar með Scandinavian Airlines Ireland sem mun sinna flugi frá Bretlandseyjum til sólarlandaáfangastaða en félagið verður fyrsta bækistöð SAS utan Norðurlandanna.

Scandinavian Airlines Ireland mun meðal annars fljúga frá Heathrow til áfangastaða í Evrópu

SAS segir í yfirlýsingu sinni að félagið ætli að tryggja sér sömu samkeppni og önnur flugfélög í Evrópu sem fljúga sambærilegar flugleiðir án þess að auka rekstarkostnað.

Til að starfsemin geti hafist mun SAS þurfa að ráða fjármálastjóra, flugrekstrarstjóra, umsjónarmann með flugflota og leiðarkerfi, tæknistjóra, starfsmannastjóra, flugöryggisstjóra, þjálfunarstjóra fyrir áhafnir, yfirflugstjóra og yfirmann sem mun koma til með að sjá um daglegan flugrekstur en ráðningar á flugmönnum, flugfreyjum og flugþjónum hefst síðar á þessu ári.

Scandinavian Airlines Ireland fær níu Airbus A320neo þotur sem munu fljúga til og frá Bretlandi til evrópskra áfangastaða.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga